HBStatz Insider

Endurgreiðsluskilmálar

Síðast uppfært: 25. júlí 2026.

Þessi endurgreiðslustefna gildir um áskrift að HBStatz Insider, sem rekið er af HB Tölfræði ehf., kt. 670819-0940, Hofgarðar 8, 170 Seltjarnarnes. Greiðslur eru afgreiddar af Paddle.com Market Limited, sem kemur fram sem söluaðili (merchant of record) gagnvart þér.

1. Ókeypis prufutímabil

Nýir notendur fá sjö daga fullan aðgang án endurgjalds og án þess að gefa upp kortaupplýsingar. Prufan rennur einfaldlega út að þeim tíma loknum og breytist ekki sjálfkrafa í áskrift. Þú greiðir ekkert nema þú veljir sjálfur að gerast áskrifandi.

2. Afturköllunarréttur

Þú átt fjórtán daga rétt til að falla frá kaupum á stafrænni áskrift í samræmi við lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þar sem aðgangur að þjónustunni hefst um leið og greitt er, samþykkir þú við kaupin að efndir hefjist strax og að afturköllunarrétturinn falli niður að því marki sem þjónustan hefur þegar verið veitt og að því marki sem lög heimila.

3. Endurgreiðslur

Ef þú hefur ekki notað þjónustuna að ráði eftir kaup endurgreiðum við áskriftina að fullu innan fjórtán daga frá greiðslu.

Eftir þann tíma eru greiddar áskriftir almennt ekki endurgreiddar, enda hefur þjónustan þá verið veitt.

Ef þjónustan liggur niðri í lengri tíma eða virkar ekki sem skyldi getur þú átt rétt á hlutfallslegri endurgreiðslu. Hafðu samband og við förum yfir málið.

Ófullkomin, seinkuð eða röng skráning einstakra leikja telst ekki ein og sér til galla á þjónustunni, sbr. 2. gr. skilmálanna. Við lagfærum slíkt þegar það kemur í ljós.

4. Uppsögn

Þú getur sagt upp áskrift hvenær sem er inni á þínum aðgangi. Uppsögn tekur gildi við lok yfirstandandi greiðslutímabils — þú heldur aðgangi út það tímabil sem þegar hefur verið greitt fyrir, en ekki er innheimt aftur. Við endurgreiðum ekki hlutfall af yfirstandandi tímabili við uppsögn.

5. Verðbreytingar

Ef áskriftarverð breytist tilkynnum við það með minnst þrjátíu daga fyrirvara á netfangið sem skráð er á aðganginn. Breytt verð tekur gildi við næstu endurnýjun og þú getur sagt upp áður en að því kemur.

6. Hvernig þú óskar eftir endurgreiðslu

Sendu tölvupóst á info@hbstatz.is með netfanginu sem áskriftin er skráð á og stuttri lýsingu. Við svörum innan fimm virkra daga. Þar sem Paddle er söluaðili getur endurgreiðsla einnig verið afgreidd í gegnum þá.

7. Hafðu samband

Spurningar um þessa stefnu má senda á privacy@hbstatz.is.

Refund Policy (English)

Last updated: 25 July 2026.

This refund policy covers subscriptions to HBStatz Insider, operated by HB Tölfræði ehf. (reg. 670819-0940), Hofgarðar 8, 170 Seltjarnarnes, Iceland. Payments are processed by Paddle.com Market Limited, who act as the merchant of record for your purchase.

1. Free trial

New accounts get seven days of full access at no cost and without entering card details. The trial simply ends after seven days; it does not roll over into a paid subscription. You are charged nothing unless you actively choose to subscribe.

2. Right of withdrawal

You have a fourteen-day right to withdraw from the purchase of a digital subscription under Icelandic consumer law (Act No. 16/2016) and the EU Consumer Rights Directive. Because access begins immediately on payment, you agree at checkout that performance starts straight away and that the right of withdrawal lapses to the extent the service has already been supplied and to the extent permitted by law.

3. Refunds

If you have not made meaningful use of the service after purchase, we refund the subscription in full within fourteen days of payment.

After that period, paid subscriptions are generally non-refundable, as the service has been supplied.

If the service is unavailable for an extended period or does not work as described, you may be entitled to a proportionate refund. Get in touch and we will look at it.

Incomplete, delayed or incorrect recording of an individual match is not in itself a defect in the service — see clause 2 of the terms. We correct such cases when they come to light.

4. Cancellation

You can cancel at any time from your account. Cancellation takes effect at the end of the current billing period — you keep access for the period already paid for, and are not billed again. We do not refund part of a period on cancellation.

5. Price changes

If the subscription price changes, we give at least thirty days' notice to the email address on the account. The new price applies from the next renewal, and you can cancel before it takes effect.

6. How to request a refund

Email info@hbstatz.is from the address the subscription is registered to, with a short description. We reply within five working days. As Paddle is the merchant of record, a refund may also be handled through them.

7. Contact

Questions about this policy can be sent to privacy@hbstatz.is.