Skilmálar
Síðast uppfært: 26. október 2026.
Þessir skilmálar gilda um notkun á HBStatz Insider („þjónustan"), greiningarvettvangi fyrir íslenskan handbolta. Þjónustan er rekin af HB Tölfræði ehf., kt. 670819-0940, Hofgarðar 8, 170 Seltjarnarnes. Með því að nota þjónustuna eða stofna aðgang samþykkir þú þessa skilmála.
1. Þjónustan
HBStatz Insider veitir tölfræði, greiningar og gervigreindarumfjöllun um handboltaleiki, leikmenn og lið. Efnið er til upplýsingar og afþreyingar.
2. Gögn og uppruni þeirra
Tölfræði um leiki byggir á skráningu sem fer fram meðan á leik stendur — ýmist hjá HBStatz eða í skráningarkerfi HSÍ. Skráningin er unnin af fólki á staðnum og getur verið ófullkomin, seinkuð eða röng. Við lagfærum og endurskráum leiki þegar villur koma í ljós, en við ábyrgjumst hvorki að skráning einstakra leikja sé tæmandi né að hún berist innan tiltekins tíma. Áskrift veitir aðgang að þeirri úrvinnslu sem við byggjum ofan á þessi gögn: xG-líkani, útreikningum, samanburði, kortum og gervigreindargreiningu. Greitt er fyrir þá úrvinnslu og aðgang að henni, ekki fyrir ábyrgð á því að undirliggjandi skráning sé villulaus.
3. Aldursviðmið
Notendur skulu vera 13 ára eða eldri til að stofna aðgang. Með skráningu staðfestir þú að þú uppfyllir þetta skilyrði.
4. Aðgangur
Þú berð ábyrgð á að halda lykilorði þínu öruggu og á allri virkni undir aðgangi þínum. Þú skalt gefa upp réttar upplýsingar við skráningu. Við áskiljum okkur rétt til að loka aðgangi sem brýtur þessa skilmála.
5. Uppsögn og eyðing aðgangs
Þú getur hvenær sem er sagt upp aðgangi þínum og óskað eftir eyðingu hans og tengdra persónuupplýsinga með því að hafa samband við okkur. Við eyðum þá gögnum þínum að teknu tilliti til lögbundinnar varðveisluskyldu, ef einhver er.
6. Gervigreind og greiningarefni
Þjónustan notar gervigreind (Anthropic Claude) við gerð umfjöllunar, svör við fyrirspurnum, tölfræðilegar greiningar og rannsóknarefni. Greiningar, rannsóknargreinar, ályktanir, líkön og annað efni þjónustunnar byggja á fyrirliggjandi gögnum og þeim aðferðum og forsendum sem notaðar eru hverju sinni. Efnið getur verið ónákvæmt, ófullkomið eða byggt á gögnum sem síðar reynast röng. Efnið er ætlað til upplýsinga og greiningar og skal ekki teljast fagleg ráðgjöf eða trygging fyrir tiltekinni niðurstöðu. Notendur bera sjálfir ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli efnisins, þar á meðal ákvörðunum um leikmenn, lið, samninga, veðmál eða fjárhagsleg málefni. Fyrirspurnir sem þú sendir greinandanum eru unnar af þriðja aðila (Anthropic). Þú skalt ekki senda viðkvæmar persónuupplýsingar í fyrirspurnum.
7. Leyfileg og sanngjörn notkun
Þú skuldbindur þig til að nota þjónustuna ekki í ólöglegum tilgangi, reyna að trufla hana, afrita gögn í stórum stíl eða endurselja efni án leyfis. Óheimilt er að sækja efni þjónustunnar sjálfvirkt, svo sem með skriftum, vélmennum eða sjálfvirkum vöfrum, eða að skrá sig sjálfvirkt inn, nema með skriflegu leyfi, og gildir það óháð magni. Aðgangur er ætlaður einum notanda og óheimilt er að deila honum. Notkun gervigreindarhluta þjónustunnar er háð notkunarmörkum. Núverandi grunnáskrift heimilar allt að 20 fyrirspurnir á dag og prufuaðgangur allt að 10 fyrirspurnir á dag; teljarinn núllstillist á miðnætti að íslenskum tíma. Önnur áskriftarþrep kunna að hafa önnur notkunarmörk. Upplýsingar um þau notkunarmörk sem gilda skulu vera aðgengilegar notanda áður en áskrift er keypt. Við kunnum að breyta notkunarmörkum vegna kostnaðar, tæknilegra takmarkana, öryggis eða misnotkunar. Veruleg breyting á mörkum greiddrar áskriftar verður tilkynnt með hæfilegum fyrirvara og tekur ekki gildi afturvirkt gagnvart þegar greiddu áskriftartímabili.
8. Hugverk
Allt efni, hönnun, kóði og tölfræðiframsetning þjónustunnar er hugverk HB Tölfræði ehf. eða leyfisveitenda fyrirtækisins og er varið af höfundalögum nr. 73/1972. Þér er óheimilt að afrita, dreifa eða nýta efnið í atvinnuskyni án skriflegs leyfis. Undirliggjandi leikjagögn kunna að koma frá þriðju aðilum.
9. Ábyrgðartakmörkun
Þjónustan er veitt „eins og hún er" og „eins og hún er fáanleg". Við ábyrgjumst ekki að gögn, greiningar, rannsóknarefni eða annað efni sé villulaust, nákvæmt eða samfellt eða að þjónustan sé ávallt aðgengileg. Að því marki sem lög leyfa ber HB Tölfræði ehf. ekki ábyrgð á óbeinu tjóni eða afleiddu tjóni sem hlýst af notkun þjónustunnar eða ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli efnis hennar. Að því marki sem lög leyfa skal heildarábyrgð HB Tölfræði ehf. vegna þjónustunnar ekki vera hærri en sú fjárhæð sem viðkomandi notandi hefur greitt fyrir þjónustuna á síðustu tólf mánuðum áður en atvik sem krafa byggist á átti sér stað. Ekkert í þessum skilmálum takmarkar réttindi eða úrræði sem ekki er heimilt að takmarka samkvæmt lögum.
10. Greidd áskrift
Sumir hlutar þjónustunnar kunna að vera háðir greiddri áskrift. Verð, greiðsluskilmálar og endurnýjun birtast áður en kaup fara fram.
11. Breytingar
Við getum uppfært þessa skilmála. Verulegar breytingar verða tilkynntar. Áframhaldandi notkun eftir breytingar telst samþykki, nema breytingin krefjist samkvæmt lögum sérstaks samþykkis.
12. Lögsaga
Um þessa skilmála og notkun þjónustunnar gilda íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
13. Hafðu samband
Spurningar um þessa skilmála má senda á privacy@hbstatz.is.
Terms and Conditions (English)
Last updated: 26 October 2026.
These terms govern your use of HBStatz Insider (the "service"), an analytics platform for Icelandic handball. The service is operated by HB Tölfræði ehf., reg. no. 670819-0940, Hofgarðar 8, 170 Seltjarnarnes, Iceland. By using the service or creating an account, you agree to these terms.
1. The service
HBStatz Insider provides statistics, analytics and AI-generated commentary on handball games, players and teams. The content is for information and entertainment.
2. Data and where it comes from
Match statistics rest on recording carried out while a game is played — either by HBStatz or in the federation's own scorer system. That recording is done by people at the venue and can be incomplete, delayed or wrong. We correct and re-record matches when errors come to light, but we do not warrant that the recording of any individual match is complete, nor that it arrives within any particular time. A subscription gives access to the analysis we build on top of that data: the xG model, calculations, comparisons, charts and AI analysis. What is paid for is that analysis and access to it, not a guarantee that the underlying recording is free of errors.
3. Age requirement
You must be 13 years or older to create an account. By registering you confirm that you meet this requirement.
4. Your account
You are responsible for keeping your password secure and for all activity under your account. You must provide accurate information when registering. We may suspend accounts that violate these terms.
5. Termination and deletion
You may terminate your account at any time and request deletion of it and your associated personal data by contacting us. We will then delete your data, subject to any statutory retention obligations.
6. AI and analytical content
The service uses AI (Anthropic Claude) in producing commentary, answering questions, generating statistical analysis and preparing research material. Analyses, research papers, conclusions, models and other content of the service are based on the data available and on the methods and assumptions applied in each case. The content may be inaccurate, incomplete, or based on data that later proves to be wrong. The content is intended for information and analysis and shall not be treated as professional advice or as a guarantee of any particular outcome. Users are themselves responsible for decisions taken on the basis of the content, including decisions concerning players, teams, contracts, betting or financial matters. Questions you send to the analyst are processed by a third party (Anthropic). You must not include sensitive personal data in your queries.
7. Acceptable and fair use
You agree not to use the service for unlawful purposes, not to attempt to disrupt it, not to scrape data at scale, and not to resell content without permission. You may not access the service by automated means, including scripts, bots or automated browsers, or log in automatically, without written permission, regardless of volume. An account is for one person and may not be shared. Use of the AI features of the service is subject to usage limits. The current base subscription permits up to 20 queries per day and trial access up to 10 queries per day; the counter resets at midnight Icelandic time. Other subscription tiers may carry different limits. The applicable usage limits will be made available to the user before a subscription is purchased. We may change usage limits for reasons of cost, technical constraints, security or misuse. A material change to the limits of a paid subscription will be notified with reasonable notice and will not take effect retroactively in respect of a subscription period already paid for.
8. Intellectual property
All content, design, code and statistical presentation of the service is the intellectual property of HB Tölfræði ehf. or its licensors and is protected by copyright law. You may not copy, distribute or commercially exploit the content without written permission. Underlying game data may originate from third parties.
9. Limitation of liability
The service is provided "as is" and "as available". We do not warrant that data, analyses, research material or other content is error-free, accurate or uninterrupted, or that the service will always be available. To the extent permitted by law, HB Tölfræði ehf. is not liable for indirect or consequential loss arising from use of the service or from decisions taken on the basis of its content. To the extent permitted by law, the total liability of HB Tölfræði ehf. in respect of the service shall not exceed the amount paid by that user for the service in the twelve months preceding the event on which the claim is based. Nothing in these terms limits any right or remedy that may not be limited by law.
10. Paid subscriptions
Parts of the service may require a paid subscription. Prices, payment terms and renewal are shown before any purchase is made.
11. Changes
We may update these terms. Material changes will be notified. Continued use after changes constitutes acceptance, unless the change requires separate consent under the law.
12. Governing law
These terms and your use of the service are governed by Icelandic law. Any disputes shall be brought before the Icelandic courts.
13. Contact
Questions about these terms can be sent to privacy@hbstatz.is.